MIÐDEILD
15. - 21. júní 2026
Miðdeild HIMA býður upp á krefjandi umhverfi fyrir metnaðarfulla 11-15 ára nemendur á fiðlu, víólu og selló.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er:
Fimm einkatímar, 45 mín. hver kennslustund
Fimm kennslustundir í kammerhóp, 45 mínútur hver kennslustund
Spila í einum masterklassa
Einn meðleikstími með píanista
Daglegar æfingar með strengjasveit
Hádegismatur ásamt öllum nemendum og kennurum
Æfingaherbergi á hverjum degi og aðstoð við æfingar
Þátttaka í tónleikum; nemendur flytja einleiksverk, kammertónlist og strengjasveitarverk á tónleikum í Hásölum og í Hörpu.
Þátttakendur mæta daglega kl 8:00 og fá æfingaherbergi til hádegis. Einkakennsla og kammertónlist fara fram á morgnana. Eftir hádegismat eru strengjasveitaræfingar, masterklassar og fleira. Kennarar Miðdeildar eru þeir sömu og í Eldri deild.
Námskeiðinu lýkur með tónleikum þann 21. júní í Hörpu þar sem nemendur leika kammertónlist og verk með strengjasveit.
Athugið að ekki verður hægt að óska eftir fleiri einkatímum en bent er á PLÚS-deild ef nemendur vilja viðameira námskeið.
Aðhald er mikið á námskeiðinu en auk þess byggir námskeiðið á að hver nemandi:
Æfi sig sjálfur í 2 klst á dag
Æfi ásamt kammerhópnum sínum í 45 mín. á dag
Spili á tvennum tónleikum – einum einleikstónleikum og einum kammer/strengjasveitartónleikum
Umsækjendur skulu senda upptöku af tveimur ólíkum verkum, minnst 7 mínútur samtals. Setjið upptökur á streymisíðu, t.d. YouTube og setjið hlekkinn í umsóknina. Ekki er tekið við upptökum sem viðhengi í tölvupósti. Upptaka verður að berast fyrir lok umsóknarfrests, 1. mars.
Námskeiðsgjald: 115.000 kr.
veittur er 10% systkinaafsláttur
umsóknarfrestur er til 1. Mars 2026
Kennarar í Mið- og Eldri deild
Fiðla
Ari Þór Vilhjálmsson
Leiðari 2. fiðlu við Israel Philharmonic
Auður Hafsteinsdóttir
Kennari í Menntaskóla í Tónlist og Tónskóla Sigursveins
Guðný Guðmundsdóttir
Heiðursprófessor við Listaháskóla Íslands
Judith Ingólfsson
Prófessor við Peabody Institute, Johns Hopkins University í Baltimore
Sif Margrét Tulinius
Kennari við Tónlistarskóla Kópavogs og Listaháskóla Íslands
Sigurbjörn Bernharðsson (Sibbi)
Prófessor í fiðluleik við Oberlin Conservatory
Víóla
Þórunn Ósk Marinósdóttir
Leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Ásdís Valdimarsdóttir
Kennari við Konunglega tónlistarháskólann í Haag
Rita Portforis
Staðgengill leiðara víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Selló
Daniel Levitov
Kennari við Peabody Institute Preparatory við John Hopkins háskóla
Sigurgeir Agnarsson
Leiðari sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sigurður Bjarki Gunnarsson
Sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennari við LHÍ
Steiney Sigurðardóttir
Staðgengill leiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Toke Møldrup
Kennari við konunglega tópnlistarháskólann í Kaupmannahöfn
Meðleikarar
Þóra Kristín Gunnarsdóttir
píanóleikari
Vladimir Stoupel
píanóleikari